Friday, May 27, 2011

Varnaglar daginn fyrir úrslitaleik...


Áður en knattspyrnuleikur ársins á sér stað verð ég að koma nokkrum atriðum á hreint:

Þið sem haldið að það geri ykkur Real Macho að halda með Real Madrid og gerið ekki annað en að drulla yfir Barcelona fyrir leikaraskap innan þeirra raða (og eruð hentuglega búnir að gleyma því hversu slæmt orðspor portúgalski sætabrauðsdrengurinn ykkar hefur í þessum málum) ættuð að fá ykkur gosdrykk, fá ykkur sæti og njóta
kvöldsins. Gleymið liðshollustu ykkar í smástund og þá fellur dillan um "dettiliðið" sjálfkrafa niður. Öll lið búa við þennan löst en aðeins eitt lið í heiminum býr yfir Lionel Messi (sem lætur sig aldrei detta, enda held ég að hann geti það ekki). Það er HREIN UNUN að horfa á Katalóníu-risana spila og hver sem skilur það ekki ætti að eyða boltaglápstíma sínum í endursýningar af vestur-þýska landsliðinu (eða jafnvel því austur-þýska).


Annað:

Ég ætlast ekki til þess að Ryan Giggs sé trúr konunni sinni. Ég ætlast ekki til þess að hann borgi skattana sína, beygi framhjá smáfuglum á leiðinni heim af æfingum eða borgi í viðbótar-lífeyrissparnað. Ég ætlast bara til þess að hann skapi dauðafæri gegn andstæðingum United og skori jafnvel inn á milli. Rétt eins og ég ætlast ekki til þess að Rooney láti mellurnar eiga sig, að Ronaldo láti Paris Hilton eiga sig eða að David Beckham hætti að vera sætur. Frá þessum mönnum þarf ég ekkert annað en þá knattsnilld sem ég veit að þeir búa yfir. Ef ég heyri eina manneskju segja mér að Ryan Giggs eigi að passa sig af því að hann sé "fyrirmynd" þá kasta ég upp yfir lyklaborðið mitt.

Og að síðustu:

Úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni gæti orðið svakalegur; vel spilaður, hraður og jafnvel heitur og grófur. Það eina sem gæti eyðilagt hann væri væll daginn eftir um að "Spánverjar standi ekki í lappirnar" eða að "United-menn kunni ekki að spila boltanum". Vonum öll að dómarinn skíti ekki á sig og reki Van Der Saar út af fyrir að vera í grænum naríum eða Xavi fyrir að heita hálf-óframberanlegu nafni. Ef við náum að skauta framhjá slíku ættu snillingarnir að vera færir um að skemmta okkur áhorfendum hreint ofboðslega.

+++++++

Illumination comes so hard...
(Henry Rollins & Mother Superior)

0 comments: