Saturday, May 14, 2011

Júrófærsla

Fínasta Evrópusýnarsöngkappleikur í kveld og stórfín frammistaða hjá vatnsgreiddum sómadrengjum okkar í landi Þýðverja. Ekki við öðru að búast. Úrslitin tóm þvæla. Ekki við öðru að búast. Það skemmdi þó ekki skemmtilegheitin. Hér heima í stofu fundum við gleðina í því að hvæsa orðið „Azerbaijan!“ eins og sjóræningjar og Georgía færði mann aftur í tímann til aldamótanna, þar sem fönk-málmur með rabbköflum og stífgeluðum uppvakningspervertum hleypti blóðinu á hreyfingu. Eins og blanda af Guano Apes og Linkin Park. Aldrei deyi nýmetallinn!

Ég hef þó örfáar tillögur með tilhögun þessa árlega teitis. Nú vakti það athygli Frónverja að „græna herbergið“ var í raun lítill bás á hvern keppendahóp, afgirtur á þrjá kanta, ekki ósvipaður nuddpotti. Ég legg til að skrefið verði stigið alla leið; að öllum keppendum verði gert að fara í nuddpott eftir flutning lags síns og sulla í kampavíni á meðan á atkvæðagreiðslunni stendur, helst með aggressífum drykkjuleikjum. Það sem þetta mun kosta í kampavíni mun skemmtanagildið af flutningi sigurlagsins meira en bæta fyrir. Rífið sigurliðið upp úr pottinum, sótölvað með svima, gefið því baðsloppa og sandala og skellið því á sviðið. Sú söngframmistaða mun skemmta Evrópu meir en öll grínatriði sem komið hafa frá Húbba-húlle yfir í Víva

la díva.

Ég veit svo sem að Víva la díva var ekki grínatriði en í alvöru.... hver hló ekki að því lagskrýpi?

Mér þætti líka vænt um að vð nýttum einu sinni tækifærið og sendum eitthvað af steiktu rokklögunum okkar út. Júróvísa Botnleðju? Hvar ertu nú frá Doktornum Spaka? Eldgosgeðveiki Mattanna tveggja með Suðurlandsskjálfta Ólafsson í húðabarsmíðum og Fjallkonuna að baki? Gefa meginlandinu eitthvað annað um okkur að tala en bankarán og bláar varir? Klæðum okkur nú í völsabrókina, gott fólk! Aaaaaaaaaa!!!

Einnig legg ég til að Karþagó verði lögð í rúst.

+++++++

Er ég ímyndunarveikur? Er lífið tölvuleikur?

(Botnleðja)

0 comments: