Saturday, July 31, 2010

Boðberi ríður röftum ríkjandi ástands

Boðberi er kvik mynd íslendsk er frumsýnd var í Sólmánuði síðast liðnum. Skeið mynda það er sýnt var á vef veraldarinnar í vetur fangaði hrifningu mína og keikur í bragði skundaði ég inn undir þak í Bakka Álfa í gærkveldi og lamdi verkið augum. Sá ljóður er iðulega á íslendskum myndum að samtöl hljóða sem orðabókaþýðingar til blands við kléna kennslukonupistla og eð tæknigaldrarnir gætu talist ofurlítið sjoppulegir, en þar með er ekki öll vísan kveðin. Hugmyndir þær er fóðra ræmuna eru kannski ekki útlistaðar út í hörgul en áhugaverðar eru þær. Stéttabarátta rennur saman við baráttu við andaverur vonskunnar í himingeiminum og blendingur sá bragðast vel í tranti hvers þess er eitthvað veit um ríkjandi skipan.

Skal illt með illu út reka? Þarf úlf til að bíta úlf á barkann? Skal auga plokkað út fyrir auga og tönn barin út fyrir tönn? Eða er hreinleikinn forsenda hinnar góðu baráttu? Eitt er víst: „Fight fire with fire“ er heimskulegasta orðatiltæki vestrænnar siðmenningar. Eldur er yfirbugaður með vatni. Vera má að illska sé á sama hátt einvörðungu að velli lögð með gæsku. Boðberi hleypir þessari togstreitu af stað í höfði glápandans og ferfalt húrra fyrir ræmunni fyrir það afrek eitt!

+++++++

A moth will find light

Fuck and feed

High on power

Firestorm greed...

(Entombed)

0 comments: