Flestum er kannski kunnugt um að gríska ríkið er nærri gjaldþroti og gengur betlförum um viða veröld. Um fýluferðir var þar að ræða. Hvorki Bandaríkin né Evrópusamfélagið vilja veita Grikkjum neina fjárhagsaðstoð og þegar Pappendreju kom til Kananslands varð mörgum þarlendum á að spyrja: Hvers vegna ættum við að aðstoða Grikkina? Hvað skuldum við þeim?
Svo að ég skauti kuldalega framhjá því miskunnarlausa mannúðarleysi sem felst í slíkum spurningum og trítli jafnvel framhjá þeirri staðreynd að Vestræn menning væri ekki til í núverandi mynd ef grískra fræða og lista hefði ekki notið við, vil ég benda spyrjendum á árið 1947. Eftir örstutta skoðun á afskiptum Bandaríkjanna af Grikklandi á því ári ætti jafnan að líta aðeins öðruvísi út:

Lýsistrata í leikriti Aristófanesar ver Akrópólis-hæðina.
Í síðari heimsstyrjöldinni braut hreyfing bænda og kommúnista á bak aftur herlið nasista í flestum landshornum Grikklands og í lok stríðsins kom breski herinn inn í landið og tók allan heiðurinn af þessu hreinsunarverki. Þar á eftir kom Kaninn sjálfur og framkvæmdi það sem hann kallar „efnahagsundur”. Það lýsti sér nokkurn veginn þannig að konungshjónum úr fasistahreyfingunni og ýmsum samstarfsmönnum nasista-setuliðsins var komið til valda til að halda aftur af andspyrnunni og Grikkland var opnað fyrir erlendum fjárfestingum uns svo ólíft var að búa þar að tugir prósenta gríska verkalýðsins flúðu land.
Í ljósi þess að í kjölfar Hildarleiksins ógurlega öðlaðist Kaninn heimsyfirráð, meðal annars með því að arðræna hina fornfrægu vöggu Vestrænnar menningar, er það kannski ekki svo galin hugmynd að Bandaríkin aðstoði hið deyjandi ríki Hellena eins og þeim er unnt. En eins og fyrri daginn er þessi tillaga mín aðeins fretur út í vindinn. Það er ykkar lesenda (ef einhver les þetta þá ennþá) að finna þefinn af vindgangi þessum og dreifa honum eins og kostur er.
+++++++
Are you mutherfuckers ready for the fatherfuckers?
(Peaches)
0 comments:
Post a Comment