Einn sólríkan dag, þegar geitungarnir flugu frjálsir á Ísalandi og sjónvarpsskjáir sýndu New Orleans orðna að sundlaug skráði ég mig á póstlista hjá Robert Greenwald, pólitískum varðhundi Vestra, sem sendir mér nú reglulega sannanir þess að hægriöflin í Kananslandi séu samansafn af snarbiluðu fólki. Í gær fékk ég þennan póst í hólfið:
Last weekend, Tea Party Patriots gathered in the Capitol and showered racist and
homophobic abuse on Democratic Congress Members supporting healthcare reform. One
Tea Party protester called the former civil rights leader and current Atlanta
Congressman John Lewis the "n-word." Another spat on Congressman Emanuel Cleaver,
also an African-American. Another called Congressman Barney Frank a "f****t." Back
in his Texas district, yet another Tea Bagger called Congressman Ciro Rodriguez a
"wet****."
SIGN OUR PETITION to the GOP: "Apologize for your hate-spewing proxies in the Tea
Party Patriots. It is not acceptable for you to build your party's political
fortunes by encouraging and defending bigotry and hatred among your supporters."
Vissulega er það áhyggjuefni að amerískir hægrimenn séu farnir að notast opinberlega við níðyrði sem þessi og vona ég að þeir Kanar sem hafi einhverja samvisku sporni gegn þessu. En mér finnst að Greenwald geri málflutning sinn aulalegan með því að nota veigrunarorð og úrfellingarstjörnur þegar hann talar um fordómaorð þau er þessir vitleysingar láta frá munni fara. Fyrir utan "n-orðið", sem er eins konar galdraorð í Ameríku eru f****t og wet**** næstum svo vel dulbúin að þau skiljast ekki.
Reynum þetta aftur, Robert. Hægrivitleysingarnir kölluðu blökkumanninn John Lewis "nigger", þingmanninn samkynhneigða Barney Frank "faggot" og hinn hispáníska Ciro Rodriguez "wetback". Það er gott að temja sér ekki notkun níðyrða sem þessara en maður hljómar eins og veimiltíta þegar maður getur ekki einu sinni haft þau eftir alvarlega trufluðu fólki án þess að nauðga úrfellingartáknunum. Orð fá gildi sitt út frá samhenginu. Bandarísk þjóðmálaumræða er svo sótthreinsuð að hún hljómar merkingarlaus. Þeir sem vita eitthvað í sinn haus hvað varðar pólitík ættu að sjá sóma sinn í að stuðla ekki að þessari þróun.
+++++++
If I hadn't made me I would have been made somehow
If I hadn't assembled myself I'd have fallen apart by now...
(Incubus)
0 comments:
Post a Comment