Sunday, March 28, 2010

Fimm heilræði

Grípur þig reglulega (jafnvel daglega) óstjórnleg löngun til þess að koma vinum þínum úr jafnvægi? Að spila háskaleik við landamæri þess er eðlileg hegðun þykir? Að eitra rótgrónar samfélagsvenjur innanfrá? Hér eru fimm leiðir til þess:

Númer eitt: Plataðu vin þinn af sama kyni með þér á rómantíska gamanmynd á þeim forsendum að til standi að gjöra stólpagrín að væminni drullunni. Þú skalt standa við það, allt þar til komið er að stóru koss-senunni með fiðlu-crescendo-inu. Í aðdraganda skjákossins mikla skaltu lauma handleggnum aftan við höfuð vinarins og þegar varir leikaranna mætast skaltu gæla ofurlaust við hnakkadramb hans með fingurgómunum. Hann mun aldrei aftur fara með þér í bíó.

Númer tvö: Bíddu þar til vinur þinn er með mikilfenglegt matarboð fyrir tengdaforeldrana, bankaðu á dyr hjá honum með miklum angistarsvip og fullvissaðu hann um að þú sért svo nærri því að skíta á þig að áframsendingin sé nú þegar komin í örlitla snertingu við nærfötin. Hann hleypir þér hlaupandi framhjá matargestunum og inn á klósett og þú skellir hurðinni á eftir þér. Gefðu svo frá þér hljóð áþekk ópum konu sem fæðir tvíbura með vatnshöfuð í hálfa klukkustund. Haltraðu að síðustu í gegnum borðstofuna á leiðinni út.

Númer þrjú: Bjóðstu til að passa ungabarn vinar þíns á meðan þú klórar þér áfergjulega í punginum innan við buxnastrenginn.

Númer fjögur: Bjóddu vini þínum í fermingu frænda þíns og segðu honum að klæðast svörtu. Sóttu hann með svart naglalakk á fingrunum og keyrðu einhverja tuttugu kílómetra inn í Heiðmörk. Þegar hann spyr þig hvar fermingin verður haldin skaltu segja að það komi honum ekkert við. Eftir tíu mínútur af vandræðalegri þögn skaltu spyrja hann frekjulega hvort hann hafi ekki örugglega munað eftir hnífnum. Hann mun annað hvort hringja í 112 í vasanum eða henda sér út úr bílnum á ferð.

og...

Númer fimm: Biddu vin þinn með áhyggjutón að athuga fyrir þig útbrot á viðkvæmum stað sem þú hefur áhyggjur af. Þegar/ef hann samþykkir skaltu leysa frá buxunum og sýna honum rasskinnarnar. Í fyrstu mun honum sýnast rauðleitur hleypingurinn vera exem af einhverju tagi en við nánari skoðun mun hann sjá að um ræðir klessu af rabbabarasultu í lögun hjarta. Spurðu hann svo hvort hann langi í ristað brauð.

Ef ekkert af ofantöldu dugir til að koma vinum þínum úr jafnvægi þá áttu alvarlega bilaða vini og ert ofboðslega heppinn.

+++++++

Bring a nickel, stomp your feet...

(Credence Clearwater Revival)

0 comments: